
UMHVERFISÁBENDINGAR
Táknið á vörunni eða á umbúðum hennar táknar að vöruna megi ekki meðhöndla
sem heimilissorp. Þess í stað ber að skila henni á viðeigandi endurvinnslustöð sem tekur
við rafeindabúnaði og rafmagnstækjum. Með því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan
hátt stuðlar þú að því að koma í veg fyrir neikvæð áhrif sem röng förgun vörunnar gæti
hugsanlega haft á umhverfi og heilsu. Nánari upplýsingar um endurvinnslu þessarar vöru
er hægt að fá hjá yfirvöldum hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í versluninni þar
sem varan var keypt.
Efni í umbúðum
Efni merkt með tákninu má endurvinna.
>PE<=pólýetýlen
>PS<=pólýstýren
>PP<=pólýprópýlen
Þetta þýðir að hægt er að endurvinna þau með því að farga þeim rétt í viðeigandi íláti.
Vistfræðileg heillaráð
Við mælum með að eftirfarandi ráðum sé fylgt til að spara vatn, orku og vernda umhverfið.
• Venjulega óhreinn þvottur þarf ekki forþvott, sem sparar þvottaefni, vatn og tíma (og
verndar umhverfið líka!).
• Vélin er sparneytnari ef hún er fullhlaðin við hvern þvott.
• Með viðeigandi formeðferð er hægt að fjarlægja bletti og minniháttar óhreinindi og
þá er hægt að þvo þvottinn á lægri hita.
• Mælið þvottaefnisskammta með tilliti til vatnshörku, óhreininda og magns af þvotti.
Umhverfisábendingar
35
Commenti su questo manuale